Traustur samstarfsaðili í aldarfjórðung

8. feb. 2023

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, skrifar um NSA í Morgunblaðinu.

Það er mikils virði fyrir íslenskt samfélag að ný eftirsótt störf verði til, ný fyrirtæki og aukin útflutningsverðmæti. Þannig þróast atvinnulíf og meira verður til skiptanna. Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins (NSA) hefur því mikilvæga hlutverki að gegna að fjármagna vænlega sprota og styðja við frumkvöðla í þeim tilgangi að skapa verðmæti fyrir íslenskt samfélag. Á þessu ári er aldarfjórðungur síðan NSA hóf starfsemi. Á þeim tíma hefur sjóðurinn komið að fjármögnun um 200 fyrirtækja og hefur fjárfest fyrir um 25 milljarða á verðlagi dagsins í dag. Þessar fjárfestingar hafa skilað ríflegri uppskeru fyrir samfélagið, skapað eftirsótt störf, skilað sérfræðiþekkingu til landsins sem og útflutningstekjum. NSA veitir frumkvöðlum einnig mikilvægan faglegan stuðning á uppbyggingarskeiði sprota. Á þennan hátt hefur NSA verið jákvætt hreyfiafl í nýsköpunarumhverfinu. 

Lengi vel var NSA eini samstarfsaðili frumkvöðla við fjármögnun en á síðustu árum hafa sprottið upp aðrir vísisjóðir sem fjárfesta í vænlegum sprotum. Þeir sjóðir hafa takmarkaðan líftíma sem þýðir að selja þarf eignir til að greiða fjárfestum til baka. NSA hóf starfsemi árið 1998 með um 5 milljarða framlagi. Þetta framlag hefur nýst vel og verið velt oft enda selur NSA eignarhluti í félögum samhliða vexti þeirra til þess að fjármagna nýja sprota. Þetta skapar NSA sérstöðu umfram aðra sjóði. 

Tilkoma fleiri vísisjóða á undanförnum árum sem og aukning á fjármunum til Tækniþróunarsjóðs þýðir að aldrei hefur verið meira fé til stuðnings nýsköpun en nú. Engu að síður er full þörf á NSA enda þurfa sprotar fjármagn á ólíkum skeiðum uppbyggingar. Þannig kemur Tækniþróunarsjóður að verkefnum á frumstigi. NSA fjármagnar sprota snemma á æviskeiði félaganna ásamt englafjárfestum. Vísisjóðir koma síðar á líftímanum. Ef vel gengur fá félög fjármagn frá stofnanafjárfestum og kunna á endanum að verða skráð á hlutabréfamarkað. 

Þessari fjármögnun NSA hefur verið líkt við brú sem er mislöng eða stutt eftir aðstæðum á mörkuðum hverju sinni. Annað mikilvægt hlutverk NSA er að bregðast við markaðsbresti í fjármögnun, milda sveiflur og beita sér þar sem aðstæður krefjast hverju sinni. NSA leggur kapp á að vera samstarfsaðili annarra fjárfesta frekar en samkeppnisaðili. Sýni aðrir fjárfestar félögum sem eru til skoðunar áhuga er það til marks um að ekki sé þörf á aðkomu NSA. 

NSA hefur þannig mikilvægu hlutverki að gegna og mun hér eftir sem hingað til styðja við vænlega sprota og stjórnendur þeirra þannig að íslenskt samfélag njóti góðs af. NSA er brúin sem liggur frá framúrskarandi hugmynd að félagi með tekjur sem skapar verðmæti fyrir íslenskt samfélag.

Sigurður Hannesson, stjórnarformaður Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.

Morgunblaðið, 8. febrúar 2023.