Verðbólgu þarf að ná niður með samstilltu átaki

13. okt. 2025

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, skrifar í Morgunblaðinu um verðbólguna.

Samtök iðnaðarins (SI) telja að stýrivexti Seðlabankans þurfi að lækka. Núverandi vaxtastig er mjög dýrkeypt fyrir samfélagið. Aðhaldsstig peningastefnunnar er of mikið miðað við stöðu efnahagslífsins og er þegar farið að hafa veruleg neikvæð áhrif á stöðu og þróun iðnaðar og atvinnulífs í heild.

Hátt vaxtastig þrengir að atvinnulífinu

​Ljóst er að núverandi vaxtastig er orðið þungur baggi að bera fyrir heimili og fyrirtæki og eru afleiðingarnar farnar að sjást í hagtölum sem sýna hægan hagvöxt og vaxandi atvinnuleysi. Áhrifanna gætir í iðnaði þar sem nú má greina samdrátt. Svo dæmi sé tekið er starfsfólki nú að fækka í öllum helstu greinum iðnaðar.

Launaþróun og húsnæðismarkaður rót verðbólgu

Verðbólgan mælist nú 4,1% og stýrivextir bankans 7,5%. Líkt og SI hafa ítrekað bent á er rót verðbólgu launaþróun og staða húsnæðismarkaðar. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands segir í yfirlýsingu sinni um að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum að launahækkanir mælist töluverðar sem hafi unnið gegn áhrifum peningastefnunnar og skýri verðbólguna að hluta.

Í gögnum Hagstofunnar kemur fram að rúmlega 40% verðbólgunnar megi rekja til verðhækkunar húsnæðis og þess ójafnvægis og framboðsskorts sem hafi verið á þeim markaði. Seðlabankastjóri hefur bent á að peningastefnan sé ekki gott tæki til að taka á verðbólgu sem er sprottin af þessum rótum. Samtök iðnaðarins taka undir það enda laga háir stýrivextir ekki þann kerfisvanda sem er á húsnæðismarkaði, þeir fjölga ekki lóðum, bæta ekki feril skipulagsmála eða einfalda regluverk. Þvert á móti gera háir stýrivextir framboðsvandann verri með því að hægja á íbúðaruppbyggingu og skapa þannig hættu á húsnæðisskorti í næstu uppsveiflu.

Seðlabankinn þarf ekki vera einn á vellinum

Í umsögn SI um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2026 kemur fram að mikilvægt sé að ríkisfjármálin styðji betur við Seðlabankann í að ná verðbólgu nær 2,5% markmiði án harðrar lendingar hagkerfisins. En Seðlabankann má ekki skilja eftir einan á vellinum. Ríki og sveitarfélög verða að spila með. Með markvissum aðgerðum þeirra er hægt að draga úr verðbólgu og lækka vexti án þess kostnaðar sem núverandi peningalega aðhald gerir. Samtök iðnaðarins leggja áherslu á að samstillt hagstjórn Seðlabankans, ríkisins, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins sé lykilatriði til að ná niður verðbólgu án mikils kostnaðar fyrir atvinnulífið og samfélagið allt.

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.

Morgunblaðið / mbl.is, 11. október 2025.