Félag hársnyrtimeistara- og sveina í Reykjavík

Félag hársnyrtimeistara og -sveina í Reykjavík var stofnað 1999.

Logo2_1713869440756Félag hársnyrtimeistara og -sveina í Reykjavík, FHMS, var stofnað 1999 og hét þá Meistarafélag hársnyrta. Í febrúar 2024 var félagið opnað fyrir hársnyrtisveina og nafni félagsins því breytt í Félag hársnyrtimeistara og -sveina í Reykjavík. 

Tilgangur félagsins er að:

  • Efla samvinnu og samheldni meðal meistara í hársnyrtiiðn.

  • Eiga samstarf við hliðstæð samtök erlendis.

  • Leggja áherslu á að menntun starfsfólks og stjórnenda í greininni sé eins góð og kostur er og að hún stuðli að eðlilegri þróun og falli að þörfum greinarinnar.

  • Stuðla að félagslegum og faglegum framförum í greininni með upplýsinga- og fræðslustarfsemi, sýningum og keppni.

  • Vera málsvari félagsmanna út á við og varðandi mál sem varða hagsmuni þeirra og opinbera umfjöllun.

Vefsíða félagsins:  https://www.meistarafelagid.is/

Tengiliður hjá SI: Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, erla@si.is.

Stjórn

Stjórn 2025

  • Margrét Brynjólfsdóttir, formaður
  • Andri Týr Kristleifsson
  • Friðrik Jónsson 
  • Halldóra Jónsdóttir 
  • Elvar Logi Rafnsson
  • Margrét Ósk Brynjólfsdóttir 
  • Friðrik Jónsson

Stjórn 2024

  • Andri Týr Kristleifsson, formaður
  • Katrín Sif Jónsdóttir, gjaldkeri
  • Margrét Ósk Brynjólfsdóttir, ritari
  • Elvar Logi Rafnsson, meðstjórnandi
  • Halldóra Jónsdóttir, meðstjórnandi