Samtök skipaiðnaðarins - SSI

Öflugur starfsgreinahópur innan Samtaka iðnaðarins

Tilgangur SSI er að vinna að hugsmuna- og stefnumálum félagsmanna

SSI_Samtok-skipaidnadarinsStofnfundur Samtaka skipaiðnaðarins - SSI - fór fram 12. desember, 2014 í Húsi atvinnulífsins. SSI starfar sem starfsgreinahópur innan Samtaka iðnaðarins. Á stofnfundinum var formaður kjörinn Þröstur Auðunsson hjá Trefjum og varformaður Sverrir Bergsson í Seiglu. Aðrir í stjórn og varastjórn voru kjörnir Ari Elísson hjá Víkingbátum, Regin Grímsson hjá Mótun og Andri Þór Gunnarsson hjá Infuse ehf.

Fyrir stofnfund samtakanna hafði átt sér stað þónokkur stefnumótunarvinna. Í því ferli kom fram lýsing á þeim árangri sem fyrirtæki í greininni vilja ná til ársins 2020 og hvaða forsendur þurfa að vera fyrir hendi til að sá árangur náist

Tengiliður hjá SI: Guðný Hjaltadóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, gudnyh@si.is

Stjórn

Stjórn SSI 2020

  • Þröstur Auðunsson, Trefjum, formaður
  • Matthías Sveinsson, Víkingbátum
  • Andri Þór Gunnarsson, Infuse

Stjórn SSI 2019

  • Þröstur Auðunsson, Trefjum, formaður
  • Sverrir Bergsson, Seiglu, varaformaður
  • Ari Elísson, Víkingbátar
  • Regin Grímsson, Mótun
  • Andri Þór Gunnarsson, Infuce ehf.

Stefna

Árangur til ársins 2020:

  • Íslensk skip í sókn, jafnt á nýjum sem eldri mörkuðum
  • Léttari, sterkari, öruggari og vistvænni lausnir
  • Traustur og öruggur vöxtur íslensks skipaiðnaðar

Forsendur:

  • Straumlínulagaðir verkferlar í íslenskum skipaiðnaði
  • Öflug innlend þróun, skilvirkt regluverk og fjármögnun
  • Framleiðsla í sátt og samlyndi við umhverfi og samfélag
  • Fjölbreytt námsframboð með spennandi framtíðarmöguleika
  • Útflutningur og kynning íslenskri þjóð til heilla

 

Áhersluverkefni

10 áhersluverkefni skilgreind í stefnumótunarferlinu

  1. Stofnun samtaka greinarinnar - stefna og markmið - fjármögnun - eftirfylgni
  2. Aðgengilegt námsframboð - kynningarefni
  3. Fjármögnun nýsköpunar í greininni - yfirsýn og umbætur
  4. Stefnumörkun í umhverfismálum og vinnuvernd
  5. Búnaður og lausnir uppfylli alþjóðlega staðla
  6. Aukin almenn þekking á trefjaplasti, áfangar í verkmenntaskólum, örnámskeið og  endurmenntun í greininni
  7. Útflutningur og kynningarmál, hugarfarsbreyting gagnvart efnisvali og bætt ímynd
  8. Bætt samstarf við Samgöngustofu, tillögur um breytingar, skrá um reglur og einfaldara eftirlit
  9. Dropinn holar steininn - skipshlutar úr trefjaplasti á stálskipum
  10. Hvatar til að kaupa innlenda framleiðslu - Endurgreiðsla aðflutningsgjalda

Fyrirtækin í félaginu