Innviðir á Íslandi 2025
Þriðja útgáfa af skýrslu SI og FRV um ástand og framtíðarhorfur innviða á Íslandi var gefin út 2025.
Innviðir á Íslandi 2025 - ástand og framtíðarhorfur er gefin út af Samtökum iðnaðarins og Félags ráðgjafarverkfræðinga. Sambærilegar skýrslur hafa verið gefnar út 2017 og 2021.
Hér er hægt að nálgast skýrsluna sem gefin var út 2025.
Eldri skýrslur
Árið 2017 var í fyrsta sinn sem heildstæð skýrsla um ástand innviða hér á landi var gefin út. Fyrirmynd að skýrslunni er sótt til Noregs og Danmerkur en fjölmargir hafa komið að gerð skýrslanna. Í skýrslunni er gerð úttekt á helst innviðum í tíu köflum sem fjalla um flugvelli, vegi, hafnir, fráveitur, hitaveitur, vatnsveitur, úrgangsmál, orkuvinnslu, orkuflutninga og fasteignir ríkis og sveitarfélaga.
Markmið með útgáfu skýrslanna er að lýsa stöðu helstu innviða hagkerfisins og draga fram þarfir og lausnir til að tryggja gæði þessara meginstoða íslensks samfélags. Í skýrslunum er lagt mat á endurstofnvirði innviðanna sem eru teknir fyrir, ástand þeirra metið, greint frá hverjar framtíðarhorfurnar eru og lagt mat á uppsafnaða viðhaldsþörf. Þá eru settar fram ráðleggingar og lýsing á því hvað þarf til að koma á breytingum. Skýrslurnar eru lagðar fram til að skapa upplýsta umræðu um stöðu innviða íslenska hagkerfisins.
Hér er hægt að nálgast allt efni útgáfufundar 2017.
Hér er hægt að nálgast allt efni útgáfufundar 2021.
Hér er hægt að nálgast allt efni útgáfufundar 2025.