Meistarafélag byggingamanna á Norðurlandi, MBN

Meistarafélag byggingamanna á Norðurlandi er félag meistara og fyrirtækja í löggiltum byggingargreinum á Norðurlandi.  Félagsmenn eru aðallega í byggingariðnaði. 

Meistarafélag byggingamanna á Norðurlandi

Markmið félagsins er að gæta hagsmuna félagsmanna sinna og stuðla að faglegum vinnubrögðum í greininni. Félagið vinnur meðal annars að aukinni menntun, verkkunnáttu og vandvirkni í byggingariðnaði og er félagsmönnum til aðstoðar í öllu sem viðkemur atvinnurekstri þeirra.  

Meistarafélag Norðurlands hefur komið sér upp sinni eigin gæðahandbók. Félagið og aðildarfyrirtæki þess eru aðilar að Samtökum iðnaðarins sem eru heildarsamtök iðnaðarins í landinu með rúmlega 1300 fyrirtæki innan sinna raða, bæði stór og smá, þar á meðal öll helstu bygginga- og verktakafyrirtæki landsins.

Vefsíða félagsins: www.mbn.is
Tengiliður SI: Friðrik Á. Ólafsson, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, fridrik@si.is

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um Ábyrgðarsjóð Meistaradeildar SI.

Stjórn

  • Þórarinn Valur Árnason (2014-2017), formaður
  • Björn Friðþjófsson (2014-2017), varaformaður
  • Þórólfur Aðalsteinsson (2013-2016), gjaldkeri
  • Hannes Óskarsson (2012-2015), ritari
  • Geir Hörður Ágústsson (2013-2016), meðstjórnandi
  • Jónas Magnús Ragnarsson (2012-2015), meðstjórnandi
  • Þórarinn Torlacíus (2014-2017), meðstjórnandi