Viðburðir
22.11.2017

Félag rafverktaka á Vesturlandi - aðalfundur

FRVL, Félag rafverktaka á Vesturlandi, sem er aðildarfélag SART heldur aðalfundi miðvikudaginn 22. nóvember. Þá verður jafnframt opinn fundur um rafmagnsöryggismál sem ber heitið: Einangrun orku / læsa - merkja - prófa. Fyrirlesarar eru Jóhann Ólafsson, fagstjóri rafmagnsöryggis hjá Mannvirkjastofnun, og Óskar Örn Pétursson, rafiðnfræðingur.