Viðburðir
UTmessan
UTmessan verður í Hörpu 2. og 3. febrúar. UTmessan felur í sér marga viðburði þá tvo daga sem dagskráin stendur. Markmið UTmessunnar er að sýna hve stór og fjölbreyttur tölvugeirinn á Íslandi er með það að markmiði að fjölga þeim sem velja sér tölvu- og tæknigreinar sem framtíðarstarfsvettvang. Öll helstu tölvu- og tæknifyrirtæki landsins taka þátt í viðburðum UTmessunnar.
Þeir sem standa að UTmessunni eru SKÝ, Samtök iðnaðarins, Háskólinn í Reykjavík og Háskóli Íslands.