Viðburðir
27.05.2019 kl. 12:30 - 14:00 Hylur, Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35

Kynningarfundur um kerfisáætlun Landsnets

Landsnet hefur kynnt til umsagnar drög að nýrri kerfisáætlun fyrirtækisins 2019-2028 en frestur til athugasemda er til 24. júní nk. Landsnet mun kynna áætlunina fyrir aðildarfyrirtækjum Samtaka iðnaðarins á fundi mánudaginn 27. maí nk. Fundurinn verður haldinn í fundarsalnum Hyl á 1. hæð í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, kl. 12.30-14.00.

Á fundinum verður eins og áður segir áætlunin kynnt og gefst fundargestum tækifæri á að spyrja fulltrúa Landsnets út í áætlunina. Á vef Landsnets er hægt að nálgast nánari upplýsingar um kerfisáætlunina. 

Bókunartímabil er frá 20 maí 2019 til 27 maí 2019