Viðburðir
19.09.2019 kl. 14:00 Grand Hótel Reykjavík

Stofnfundur Samstarfsvettvangs um loftslagsmál og grænar lausnir

Stofnfundur Samstarfsvettvangs um loftslagsmál og grænar lausnir fer fram fimmtudaginn 19. september næstkomandi á Grand Hótel Reykjavík kl. 14.00. Á fundinum verður farið yfir hlutverk, verkefni og tilhögun vettvangsins sem hefur það markmið að bæta árangur Íslands í loftslagsmálum og miðla fjölbreyttu framlagi landsins á þessu sviði.

DAGSKRÁ

Setning - Unnur Brá Konráðsdóttir og Sigurður Hannesson, formenn vettvangsins

Ávarp forsætisráðherra - Katrín Jakobsdóttir

Ávarp framkvæmdastjóra SA - Halldór Benjamín Þorbergsson

Erindi forstöðumanns vettvangsins - Eggert Benedikt Guðmundsson

Fundarstjórn og lokaorð - Formenn vettvangsins

Hér er hægt að skrá sig á stofnfundinn.