Viðburðir
Ársfundur Hugverkaráðs SI
Ársfundur Hugverkaráðs SI verður haldinn miðvikudaginn 25. september næstkomandi kl. 16.30-18.00 á Vox Home, Hilton Reykjavík Nordica.
Á fundinum verður nýtt Hugverkaráð SI skipað og tillaga borin upp að nýjum starfsreglum ráðsins. Formaður Hugverkaráðs SI mun gera grein fyrir þeim árangri sem náðst hefur á síðastliðnu starfsári og umræður verða um áherslumálin framundan. Allir félagsmenn eru hvattir til að senda fulltrúa.
Boðið verður upp á léttar veitingar.