Viðburðir
30.10.2019 kl. 8:30 - 10:30 Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35

Hver ber ábyrgð á mannvirkinu?

Samtök iðnaðarins standa fyrir fræðslufundi um ábyrgðir miðvikudaginn 30. október kl. 8.30 í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35. Á fundinum mun Ingibjörg Halldórsdóttir, héraðsdómslögmaður, fara yfir minnisblað sem hún tók saman fyrir samtökin og varðar lagareglur um ábyrgð hönnuða, byggingarstjóra og iðnmeistara. Jafnframt verður fjallað um skaðabótaábyrgð vinnuveitenda, starfsábyrgðartryggingar og tímalengd ábyrgða. Fundarstjóri er Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI. 

Dagskrá

8.30–9.30 Ábyrgð og lögbundið hlutverk byggingarstjóra og iðnmeistara

9.30–9.40 Kaffihlé

9.40–10.30 Ábyrgð og lögbundið hlutverk hönnuða

Fundir verða einnig haldnir á eftirfarandi stöðum:

Selfoss - 5. nóvember kl. 17.00 á Hótel Selfossi

Akureyri - 6. nóvember kl. 17.00 á Hótel KEA

Ísafjörður - 12. nóvember kl. 17.00 á Vestfjarðastofu

Egilsstaðir - 14. nóvember kl. 17.00 á Hótel Héraði

Reykjanes - auglýst síðar

Vesturland - auglýst síðar 

Bókunartímabil er frá 21 okt. 2019 til 30 okt. 2019