Viðburðir
20.11.2019 kl. 8:15 - 9:00 Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35

Menntamorgnar atvinnulífsins - Rafræn fræðsla

Annar fundur í fundaröðinni Menntamorgnar atvinnulífsins um rafræna fræðslu verður haldinn miðvikudaginn 20. nóvember kl. 8.15-9.00 í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35. Að Menntamorgnum atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök verslunar og þjónustu, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök ferðaþjónustunnar og Samorka.

DAGSKRÁ

  • Elomi rafrænt námsumhverfi í Landsbankanum - Auður Hrefna Guðmundsdóttir, sérfræðingur í fræðsludeild Landsbankans
  • VIGGA – fræðsluvefur framtíðar - Steinunn Ketilsdóttir, ráðgjafi í stafrænni fræðslu Intellecta
  • Lærum af reynslunni – rafræn fræðsla í BYKO - Auðunn Gunnar Eiríksson, mannauðsstjóri BYKO

Fundarstjóri er Jóhanna Vigdís Arnardóttir, verkefnastjóri í menntamálum hjá SI.

Hér er hægt að skrá sig á fundinn.