Viðburðir
04.12.2019 kl. 17:00 Hótel B-59 í Borgarnesi

Hver ber ábyrgð á mannvirkinu? Fræðslufundur í Borgarnesi

Samtök iðnaðarins standa fyrir fræðslufundi um ábyrgðir miðvikudaginn 4. desember kl. 17.00 á Hótel B-59 í Borgarnesi. Á fundinum mun Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, fara yfir minnisblað sem Ingibjörg Halldórsdóttir, héraðsdómslögmaður, tók saman fyrir samtökin og varðar lagareglur um ábyrgð hönnuða, byggingarstjóra og iðnmeistara. Jafnframt verður fjallað um skaðabótaábyrgð vinnuveitenda, starfsábyrgðartryggingar og tímalengd ábyrgða. Fundarstjóri er Kristján Daníel Sigurbergsson, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI.

Bókunartímabil er frá 27 nóv. 2019 til 4 des. 2019