Viðburðir
Aðalfundur Málarameistarafélagsins
Stjórn Málarameistarafélagsins boðar til aðalfundar þriðjudaginn 24. nóvember og hefst hann kl. 17.00. Í ljósi aðstæðna verður fundurinn með rafrænum hætti að þessu sinni. Fundargestir þurfa að skrá sig á fundinn fyrir kl. 12.00 þriðjudaginn 24. nóvember.
Innskráningarhlekkur á fundinn verður sendur á þá sem skrá sig á fundinn um kl. 14.00 á fundardegi.
Dagskrá
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningar félagsins.
3. Ákvörðun árgjalds og fjárhagsáætlun.
4. Lagabreytingar, ef fyrir liggja.
5. Kosning til stjórnar.
6. Kosning skoðunarmanna.
7. Kynning á skipan nefnda félagsins.
8. Önnur mál.