Viðburðir
04.03.2021 kl. 10:00 - 12:00 Rafrænn fundur

Aðalfundur SI

Fyrri hluti Iðnþings, aðalfundur Samtaka iðnaðarins, fer fram fimmtudaginn 4. mars kl. 10.00–12.00, í fundarsalnum Hyl á 1. hæð í Borgartúni 35. Síðari hluti Iðnþings fer fram í beinni útsendingu frá Hörpu sama dag kl. 13.00-14.30.

Í ljósi samkomutakmarkana er einungis gert ráð fyrir að starfsmenn fundarins, kjörstjóri, framkvæmdastjóri og stjórnarmenn SI mæti á aðalfundinn sem hefst kl. 10. Aðrir fundarmenn taka eingöngu þátt með rafrænum hætti.

Skráning á fundinn fer fram með þeim hætti að fyrirsvarsmenn allra félagsmanna fá sendan tölvupóst þann 3. mars nk., daginn fyrir aðalfund, með vísun inn á rafrænan aðalfund. Innskráning gerir kröfu um auðkenningu með rafrænum skilríkjum.

Mikilvægt er að upplýsingar um tengiliði fyrirtækisins séu réttar á Þínum síðum og eru félagsmenn hvattir til að uppfæra upplýsingar þar. Fyrirsvarsmaður fyrirtækisins sem skráður er sem rétthafi á aðalfundi mun eiga kost á að kjósa á aðalfundi fyrir hönd fyrirtækisins. Samtök fyrirtækja, þar með talin iðngreina- og meistarafélög, fara með atkvæði félagsmanna sinna á aðalfundi nema tilkynnt hafi verið um annað skv. 10. gr. laga SI.

Ef spurningar vakna vinsamlegast sendið fyrirspurn á mottaka@si.is.

Á dagskrá fyrri hluta Iðnþings verðandi eftirfarandi mál tekin fyrir:

  1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
  2. Framkvæmdastjóri leggur fram til úrskurðar endurskoðaða ársreikninga samtakanna fyrir liðið almanaksár, með athugasemdum endurskoðanda
  3. Tillaga stjórnar um fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár
  4. Lagabreytingar
  5. Launakjör stjórnarmanna
  6. Lýst kjöri meðstjórnenda
  7. Kjör í fulltrúaráð Samtaka atvinnulífsins
  8. Kjörinn löggiltur endurskoðandi
  9. Kosinn kjörstjóri og tveir aðstoðarmenn hans
  10. Önnur mál