Viðburðir
12.05.2021 kl. 12:00

Aðalfundur SA

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins verður haldinn miðvikudaginn 12. maí kl. 12.00. Fram fara hefðbundin aðalfundarstörf þar sem greint verður m.a. frá kjöri formanns Samtaka atvinnulífsins og stjórnar SA 2021-2022.

Rétt til setu á aðalfundinum eiga stjórnendur aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins ásamt starfsmönnum SA og aðildarsamtaka.

Ársfundur atvinnulífsins 2021 sem er öllum opinn verður haldinn að hausti.