Viðburðir
02.09.2021 kl. 9:30 - 10:30 Kaffi Flóra í Laugardal

Vaxtarsprotinn 2021

Vaxtarsprotinn 2021 verður afhentur í Kaffi Flóru í Laugardal fimmtudaginn 2. september kl. 9.30-10.30.

Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands. Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja. Aðstandendur verkefnisins skipa dómnefnd sem sér um val á þeim fyrirtækjum sem hljóta viðurkenningu og nafnbótina Vaxtarsproti ársins.

Eftirfarandi fyrirtæki hafa hlotið Vaxtarsprotann: Kerecis (2020), Carbon Recycling International (2019), Kaptio (2018), Kerecis (2017), Eimverk (2016), Kvikna (2015), DataMarket (2014), Meniga (2013), Valka (2012), Handpoint (2011), Nox Medical (2010), Mentor (2009), Mentor (2008) og Marorka (2007). 

Bókunartímabil er frá 1 júl. 2021 til 2 sep. 2021