Viðburðir
19.05.2022 kl. 17:30 Hilton Reykjavík Nordica

Kynningarfundur Félags pípulagningameistara og Samtaka iðnaðarins

Félag pípulagningameistara og Samtök iðnaðarins bjóða félagsmönnum FP til kynningarfundar fimmtudaginnn 19. maí kl. 17.30 á Hilton Reykjavík Nordica.

Á fundinum munu fulltrúar Samtaka iðnaðarins og Samtaka atvinnulífsins kynna starfsemi beggja samtaka og í kjölfarið verður efnt til umræðna. Tilefni fundarins er fyrirhuguð kosning félagsmanna FP um inngöngu í SI og SA sem mun hefjast föstudaginn 20. maí í samræmi við ályktun síðasta aðalfundar FP.

Boðið verður upp á léttar veitingar.

Fyrir þá félagsmenn FP sem ekki hafa tök á að vera á staðnum er hægt að fylgjast með fundinum og taka þátt í gegnum fjarfundarbúnað. Mikilvægt er að skrá í athugasemdardálk ef óskað er eftir því að vera á fjarfundi. 

Bókunartímabil er frá 11 maí 2022 til 19 maí 2022