Viðburðir
31.01.2023 kl. 8:30 - 10:00 Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35

Ísland er að ráða - fundur SUT og SI

Samtök upplýsingatæknifyrirtækja og Samtök iðnaðarins standa fyrir viðburði þriðjudaginn 31. janúar kl. 8.30-10.00 í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35 þar sem fjallað verður um það sem er nauðsynlegt að hafa í huga við ráðningu og móttöku erlendra sérfræðinga til landsins. Samkvæmt greiningu Samtaka iðnaðarins þarf um 9.000 sérfræðinga til starfa í hugverkaiðnaði ef vaxtaáætlanir fyrirtækja í iðnaðinum eiga að ná fram að ganga og ljóst er að mikið af þeim sérfræðingum munu þurfa að koma erlendis frá.

Dagskrá

  • Opnunarávarp - Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Mannauður - auðlind hugverkaiðnaðar - Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI
  • Panell - Mannauðsstjórar og erlendir sérfræðingar ræða sína reynslu af ráðningarferli og aðlögun
  • Umsókn um atvinnuleyfi - hvað þarf að hafa í huga? - Edda Bergsveinsdóttir, sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun
  • Aðlögun, búferlaflutningar, makinn og gæludýrið - Einar Örn Ævarsson, framkvæmdastjóri Xpat
  • Fundarstjórn - Gunnar Zoëga, forstjóri Opinna kerfa og formaður SUT

 

Bókunartímabil er frá 13 jan. 2023 til 31 jan. 2023