Hver er staðan á íbúðamarkaðnum og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðunum?
Byggðastofnun, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Samtök iðnaðarins og Lóa nýsköpunarstyrkur standa saman að opnum fundi á Kaffi Krók í hádeginu fimmtudaginn 19. október og er hann öllum opinn. Beint vefstreymi frá fundinum verður á Facebook hjá Byggðastofnun.
Dagskrá
Áskoranir og tækifæri á Norðurlandi vestra? Katrín M. Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV
Staða íbúðauppbyggingar Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri hjá HMS
Stafræn byggingarleyfi Hugrún Ýr Sigurðardóttir, verkefnastjóri hjá HMS
Lánastarfsemi Byggðastofnunar Hrund Pétursdóttir, forstöðumaður Fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar og Guðbjörg Óskarsdóttir, sérfræðingur hjá Byggðastofnun
Nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina Sigurður Steingrímsson, sérfræðingur hjá HVIN
Aukum hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu Friðrik Ágúst Ólafsson, viðskiptastjóri hjá SI
Húsið opnar kl. 11:30 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn. Fundarstjóri er Guðmundur Haukur Jakobsson formaður stjórnar SSNV.
Hér er hægt að nálgast nánari upplýsingar.