Viðburðir
Atvinnuuppbygging og þróun íbúðamarkaðar - fundur á Höfn
Mánudaginn 20. nóvember verður haldinn opinn fundur um atvinnuuppbyggingu og þróun íbúðarmarkaðar í landsbyggðunum. Fundurinn verður haldinn á Hótel Höfnkl. 11:30 og er opinn öllum. Að fundinum standa ýmsir aðilar sem láta sig varða uppbyggingu í landsbyggðunum eða SASS, Byggðastofnun, HMS, Lóa nýsköpunarstyrkir og Samtök iðnaðarins.
Á fundinum verður fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði, stafræn byggingarleyfi, nýsköpunarstyrki, hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu og þau lánaúrræði sem standa til boða bæði hvað varðar rekstur og íbúðaruppbyggingu.
Dagskrá
- Áskoranir og tækifæri á Suðurlandi Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri SASS
- Staða íbúðauppbyggingar Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri hjá HMS
- Stafræn byggingarleyfi Hugrún Ýr Sigurðardóttir, verkefnastjóri hjá HMS
- Lánastarfsemi Byggðastofnunar Guðbjörg Óskarsdóttir, sérfræðingur á fyrirtækjasviði Byggðastofnunar
- Nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina Lóa Auðunsdóttir, sérfræðingur hjá HVIN
- Aukum hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu Friðrik Á. Ólafsson, viðskiptastjóri hjá SI
Húsið opnar kl. 11:15 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn.