Viðburðir
21.11.2023 kl. 11:30 Hótel Berjaya Hérað Egilsstöðum

Atvinnuppbygging og þróun íbúðamarkaðar - fundur á Egilsstöðum

Þriðjudaginn 21. nóvember verður haldinn opinn fundur um atvinnuuppbyggingu og þróun íbúðarmarkaðar í landsbyggðunum. Fundurinn verður haldinn á Hótel Berjaya Hérað á Egilsstöðum kl. 11:30 og er opinn öllum. Að fundinum standa ýmsir aðilar sem láta sig varða uppbyggingu í landsbyggðunum eða SASS, Byggðastofnun, HMS, Lóa nýsköpunarstyrkir og Samtök iðnaðarins. Fundurinn er haldinn í samstarfi við Austurbrú.

Á fundinum verður fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði, stafræn byggingarleyfi, nýsköpunarstyrki, hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu og þau lánaúrræði sem standa til boða bæði hvað varðar rekstur og íbúðaruppbyggingu.

Dagskrá

  • Áskoranir og tækifæri á Suðurlandi Dagmar Ýr Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar
  • Staða íbúðauppbyggingar Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri hjá HMS
  • Stafræn byggingarleyfi Hugrún Ýr Sigurðardóttir, verkefnastjóri hjá HMS
  • Lánastarfsemi Byggðastofnunar Pétur Friðjónsson, sérfræðingur á fyrirtækjasviði Byggðastofnunar
  • Nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina Lóa Auðunsdóttir, sérfræðingur hjá HVIN
  • Aukum hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu Friðrik Á. Ólafsson, viðskiptastjóri hjá SI

Húsið opnar kl. 11:15 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn.