Viðburðir
23.11.2023 kl. 15:00 - 16:00 Rafrænn fundur

Gjaldskrárhækkun Sorpu - rafrænn fundur fyrir félagsmenn SI

Samtök iðnaðarins boða félagsmenn til rafræns fundar með stjórnendum Sorpu fimmtudaginn 23. nóvember kl. 15-16 þar sem farið verður yfir breytingar á gjaldskrá Sorpu. Sorpa hefur boðað hækkanir á gjaldskrá sem mun auka tekjur Sorpu um rúm 11% sem talið er vera í samræmi við hækkanir verðlags. Gjaldskrárbreytingin kveður hins vegar á um nokkrar tilfærslur milli flokka vegna samdráttar í magni til urðunar með tilkomu útflutnings á úrgangi til orkuvinnslu sem hefur þær afleiðingar að kostnaður við urðun hækkar. Breytt gjaldskrá Sorpu mun að óbreyttu taka gildi 1. janúar 2024.

Fundurinn fer fram á Teams. 

Bókunartímabil er frá 15 nóv. 2023 til 23 nóv. 2023