Viðburðir
14.02.2024 kl. 9:00 - 10:30 Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa

Menntadagur atvinnulífsins 2024

Göngum í takt - er menntakerfið að halda í við þarfir atvinnulífsins? er yfirskrift Menntadags atvinnulífsins sem fer fram í Norðurljósum í Hörpu miðvikudaginn 14. febrúar kl. 9-10.30.

Á fundinum kynnum við niðurstöður úr könnun Gallup á eftirspurn eftir vinnuafli þvert á atvinnugreinar í því augnamiði að skilgreina nauðsynlegar aðgerðir svo vinnuaflsskortur hamli ekki vexti í atvinnulífinu. Rödd atvinnulífsins fær að heyrast sem fyrr og ráðherrar málaflokksins mæta í umræður þar sem menntakerfið er krufið með tilliti til færniþarfar á vinnumarkaði.

Þá eru hin árlegu menntaverðlaun atvinnulífsins veitt í tveimur flokkum af forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni.

Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.

Hér er hægt að skrá sig.