Viðburðir
Vinnustofa um umhverfisskilyrði í útboðum og verksamningum
Ríkiskaup, Samtök iðnaðarins, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Grænni byggð boða til opins samtals um umhverfisskilyrði í útboðum og verksamningum hér á landi. Fundurinn fer fram miðvikudaginn 6. mars kl. 14.00 til 15.30 í Húsi atvinnulífsins að Borgartúni 35, í fundarsalnum Hyl.
Fundarstjóri er Elísa Arnarsdóttir, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði.
Dagskrá
- Þóra Margrét Þorgeirsdóttir frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun fer yfir forsendur og markmið aðgerðar 6.4 í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð.
- Sveinbjörn Ingi Grímsson frá Ríkiskaupum fjallar um svigrúm í opinberum innkaupum til að beita umhverfisskilyrðum innan lagalega heimilda.
- Áróra Árnadóttir framkvæmdastjóri Grænni byggðar fjallar um niðurstöður úr svarkönnun um notkun á umhverfisskilyrðum í útboðum og verksamningum fyrir þjónustu- og vörukaup í mannvirkjageiranum á Íslandi.
- Ragnar Ómarsson verkefnisstjóri Verkís hf. fjallar um efni umhverfisskilyrða í norrænum fyrirmyndum og íslenskum hugmyndum.
- Vinnustofa með opnu umræðum á vinnuborðum um forgangsröðun og áherslur í samræmdum umhverfisskilyrðum fyrir útboð og valforsendur fyrir tilboð.