Viðburðir
18.04.2024 kl. 14:00 - 15:15 Íþrótta- og sýningarhöllin í Laugardal

Fjárfesting í vegasamgöngum - er tankurinn tómur?

Í tilefni af opnun stórsýningarinnar Verk og vit standa Samtök iðnaðarins fyrir ráðstefnu um fjárfestingu í samgönguinnviðum á Íslandi fimmtudaginn 18. apríl kl. 14-15.15 í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal. Þegar ráðstefnunni lýkur verður ráðstefnugestum boðið að vera við formlega opnun sýningarinnar.

Á ráðstefnunni verður fjallað um aðkallandi fjárfestingaþörf í vegasamgöngum landsins, bæði vegna viðhalds og nýfjárfestinga. Eins verður fjallað um það hvernig hægt er að koma samvinnuverkefnum í framkvæmd.

Þátttakendur í dagskrá

  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI
  • Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI
  • Guðrún Dröfn Gunnarsdóttir, sviðsstjóri samgangna og umhverfis hjá Verkís
  • Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs hjá Vegagerðinni
  • Gísli Gíslason, fyrrverandi formaður Spalar
  • Berglind Hallgrímsdóttir, samgönguverkfræðingur hjá Eflu
  • Hjörtur Þór Steindórsson, forstöðumaður fyrirtækja og fjárfesta hjá Íslandsbanka
  • Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Betri samgangna

Bókunartímabil er frá 27 mar. 2024 til 18 apr. 2024