Viðburðir
19.02.2025 kl. 9:00 - 10:30 Grand Hótel Reykjavík

Markaðsmorgunn NLSH

Nýr Landspítali, NLSH, býður til Markaðsmorguns miðvikudaginn 19. febrúar á Grand Hótel Reykjavík kl. 9.00-10.30.

Í upphafi fundarins verða flutt nokkur örerindi og í kjölfarið verða lykilstarfsmenn NLSH boðnir og búnir til að ræða við fundarmenn og svara fyrirspurnum um verkefni NLSH.

Áherslan verður á:

  • Stöðu framkvæmda NLSH
  • Helstu framkvæmdaverkefni NLSH á næstunni og innkaupaverkefni þeim tengd

Bókunartímabil er frá 11 feb. 2025 til 19 feb. 2025