Nýr markaður fyrir íslensk tæknifyrirtæki?
Íslandsstofa, í samstarfi við Utanríkisráðuneytið og Samtök iðnaðarins, stendur fyrir ráðstefnu þriðjudaginn 25. mars, kl. 9:00-13:00 á Hilton Reykjavík Nordica, um tækni með tvíþætt notagildi (e. dual use technology), til að mynda fyrir leit og björgun og lög- og landhelgisgæslu í öryggis- og varnarmálum. Á viðburðinum verður farið yfir einkenni markaðarins, nýsköpun og fjárfestingar (þ.á.m. hraðla og sjóði), lög og reglur sem gilda og þarf að uppfylla til að starfa á þessum markaði og reynslu íslenskra fyrirtækja sem það hafa gert.
Dagskrá
Ráðstefnustjóri: Hlynur Guðjónsson, sendiherra Íslands í Kanada
08:30-09:00: Innritun og morgunkaffi
Opnunarávarp – Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri, Íslandsstofa
Tvíþætt tækni í öryggis- og varnarmálum – Yfirlit og einkenni markaðarins
Framsögur:
- Mindy Pearce, Senior Policy Advisor, Canadian Association of Defence and Security Industries (CADSI)
- Lance K. Landrum, Lieutenant General (Ret), fyrrum varaformaður hermálanefndar NATO
Hringborðsumræður
Umræðustjóri: Garðar Forberg, varnarmálafulltrúi Íslands gagnvart Bandaríkjunum og Kanada
Nýsköpun og fjárfestingar
Framsögur: Joseph Thom, Challenge Manager, DIANA (NATO Defence Innovation Accelerator), Ari Kristinn Jónsson, stjórnarmaður, NATO Innovation Fund
Hringborðsumræður:Joseph Thom, DIANA (NATO Defence Innovation Accelerator), Ari Kristinn Jónsson, stjórnarmaður, NATO Innovation FundGlenn Cowan, meðstofnandi og forstjóri, General Partner, One9
Umræðustjóri: Helga Valfells, meðstofnandi, Crowberry Capital
Lög og reglur
Eftirlit með flutningi á hlutum með tvíþætt notagildi (nr. 1120/2023) og reglugerð um flutning á hergögnum og varnartengdum vörum (nr. 1212/202), umsóknarferlið o.fl.Bjarki Þórsson, lögfræðingur, Laga og stjórnsýsluskrifstofa, UtanríkisráðuneytiðStefán Reynisson, forstjóri, Teledyne Gavia
11:50-12:15: Léttur hádegisverður
12:15 Reynsla íslenskra fyrirtækja af markaðnum
Hringborðsumræða íslenskra fyrirtækja
Umræðustjóri: Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri, Samtök iðnaðarins
Lokaávarp – Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri, Samtök iðnaðarins
13:00 Ráðstefnulok
13:30 – 16:00: Fyrirtækjafundir
Íslensk fyrirtæki geta óskað eftir fundum með:
- Mindy Pearce, Senior Policy Advisor, Canadian Association of Defence and Security Industries (CADSI)
- Lance K. Landrum, Lieutenant General (Ret), fyrrum varaformaður hermálanefndar NATO
- Dr. Ari Kristinn Jónsson, stjórnarmaður, NATO Innovation Fund
- Joseph Thom, Challenger Manager, DIANA (NATO Defence Innovation Accelerator)
- Glenn Cowan, meðstofnandi og forstjóri, General Partner, One9
Hér er hægt að skrá sig.