Viðburðir
Nýsköpunarvikan: Nýsköpun í mannvirkjagerð 2025
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun boðar til fundar um nýsköpun í mannvirkjagerð í Borgartúni 21, miðvikudaginn 14 .maí n.k. milli kl. 13 og 16. Styrkhafar Asks – mannvirkjarannsóknasjóðs munu kynna verkefni sín á fundinum. Fundurinn er hliðarviðburður í Nýsköpunarvikunni/Iceland Innovation Week 2025.
Fjallað verður um hringrás byggingarefna, sjálfbæra hönnun, nýsköpun í byggingarefnum, gæði og orkunýtingu mannvirkja, regnvatnsgryfjur, drenbox og stafræna mannvirkjagerð.
Hér er hægt að nálgast viðburðinn á Facebook.
Hér er viðburðurinn á HMS vefnum.