Viðburðir
24.09.2025 kl. 8:45 - 10:00 Flóran í Grasagarðinum í Laugardal

Vaxtarsprotinn 2025

Vaxtarsprotinn 2025 verður afhentur miðvikudaginn 24. september í Flórunni í Grasagarðinum í Laugardal. Boðið verður upp á morgunmat frá kl. 8.45 og dagskrá hefst kl. 9.00.

Vaxtarsprotinn er afhentur þeim sprotafyrirtækjum sem sýna mestan vöxt í söluveltu milli síðasta árs og ársins á undan. Tilgangur Vaxtarsprotans er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi slíkra fyrirtækja.

Skrá mig