Viðburðir
09.10.2025 kl. 12:00 - 13:00 Rafmennt, Stórhöfða 27

Tækifæri í framleiðslu og geymslu birtuorku á Íslandi

Samtök rafverktaka, Sart, bjóða áhugafólki um birtuorku á fræðslufund fimmtudaginn 9. október kl. 12:00-13:00 í Rafmennt, Stórhöfða 27. Húsið opnar kl. 11:30 og boðið verður upp á matarmikla súpu fyrir fundargesti.

Á fundinum verður farið yfir m.a.:

  • Fýsileika þess að virkja og geyma birtuorku við íslenskar aðstæður
  • Tæknileg atriði sem hafa þarf í huga
  • Sölu birtuorku og leyfismál
  • Gagnaskil og reglur HMS og veitufyrirtækja

Dagskrá

  • Linda Fanney Valgeirsdóttir, framkvæmdastýra og meðstofnandi Alor ehf.
  • Rúnar Kristjánsson, verkefnastjóri hjá Tengli ehf.
  • Óskar Frank Guðmundsson, sérfræðingur í rafmagnsöryggi hjá HMS

Fundinum verður einnig streymt í beinni fyrir þá sem ekki komast á staðinn, hlekk á streymið verður deilt á fundardegi til þeirra sem merkja við streymi í skráningunni.

Fræðslufundurinn er kjörið tækifæri fyrir löggilta rafverktaka, frumkvöðla, stefnumótendur og aðra áhugasama um endurnýjanlega orkukosti og nýsköpun. Með því að miðla þekkingu og stuðla að umræðu um nýjar lausnir í orkumálum styðja Samtök rafverktaka við uppbyggingu sjálfbærs og framsýns iðnaðarumhverfis á Íslandi.

Skráning er nauðsynleg.

Hér er hægt að skrá sig á fundinn.