Viðburðir
24.02.2026 kl. 17:00 - 18:30 Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35

Boð SI til kvenna í mannvirkjaiðnaði

Samtök iðnaðarins bjóða konum í mannvirkjaiðnaði (KÍM) í heimsókn í Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35, þriðjudaginn 24. febrúar kl. 17.00–18.30.

Samtökin fara yfir helstu áherslumál mannvirkjaiðnaðarins hvað varðar uppbyggingu og stöðu greinarinnar.

Við fáum einnig til okkar Hjört Sigurðsson, framkvæmdastjóra Mynstra, sem fjallar um hvernig gervigreind og nýjar tæknilausnir eru að endurmóta byggingar- og mannvirkjagerð – og hvaða áhrif það hefur á störf og þróun greinarinnar á næstu árum.

Að loknum erindum gefst tækifæri til umræðna og tengslamyndunar.

Boðið verður upp á léttar veitingar.

Skrá mig