Viðburðir
21.04.2026 kl. 12:00 - 13:00

SÍK - Samtal við sjónvarpsstöðvar

Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda mun á næstu vikum efna til samtals við helstu sjónvarpsstöðvar landsins.

Tilgangur samtalanna er að fara yfir stöðu og áherslur dagskrárdeilda stöðvanna, með sérstakri áherslu á kaup á innlendu efni og hvernig þær sjá þróunina á þeim markaði.

Fyrsta samtalið verður haldið með Ríkissjónvarpinu þriðjudaginn 21. apríl nk. kl. 12:00–13:00, í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.

Næsta samtal verður miðvikudaginn 29. apríl við Símann. Takið daginn frá, skráning á þann viðburð verður send út síðar.

Skráningarhlekkur á samtal við RÚV: 

Skrá mig