Viðburðir
29.04.2026 kl. 12:00 - 13:00 Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35

SÍK - Samtal við sjónvarpsstöðvar - Síminn

Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda, SÍK, hefur efnt til markvissra funda með helstu sjónvarpsstöðvum landsins til þess að fara yfir stöðu og áherslur í íslenskri dagskrárgerð. 

Næsti fundur í fundaröðinni verður haldinn miðvikudaginn 29. apríl kl. 12-13 í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35 þegar fulltrúar frá Símanum mæta til leiks. Er þetta mikilvægur vettvangur fyrir félagsmenn til að fá beina innsýn í áætlanir Símans og ræða samstarfsmöguleika á íslenskum sjónvarpsmarkaði.

Félagsmenn eru beðnir um að skrá þátttöku sína tímanlega í gegnum meðfylgjandi hlekk til þess að auðvelda skipulagningu og veitingar. 

Boðið verður upp á léttan hádegisverð.

Skrá mig