Viðburðir
SÍK: Samtal við sjónvarpsstöðvar - Sýn
Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda, SÍK, hefur síðustu vikur efnt til fundaraðar með helstu sjónvarpsstöðvum landsins þar sem farið er yfir stöðu og framtíðarsýn í íslenskri dagskrárgerð. Þriðjudaginn 12. maí kl. 9-10 mæta fulltrúar frá Sýn til samtals í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35. Þar gefst félagsmönnum tækifæri til að fá beina innsýn í áætlanir Sýnar og ræða framtíðarsamstarf á íslenskum sjónvarpsmarkaði.
Félagsmenn eru hvattir til að nýta þetta mikilvæga samtal og taka þátt í lokaþætti fundaraðarinnar.
