Viðburðir
12.05.2026 kl. 9:00 - 10:00 Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35

Fræðslufundur um verktakarétt

Samtök iðnaðarins standa fyrir fræðslufundi fyrir félagsmenn í mannvirkjaiðnaði á sviði verktakaréttar þriðjudaginn 12. maí kl. 9:00-10:00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, fundarsalur Veröld, 4. hæð

Á fundinum mun Magnús Ingvar Magnússon, lögmaður og einn eigenda Landslaga, fjalla um tómlæti og fyrningu krafna verktaka og verkkaupa. Mun Magnús jafnframt fjalla um nýlega dóma og hvaða lærdóm verktakar geta dregið af þeim. 

Boðið verður upp á streymi. Þau sem hafa hug á nýta sér streymið taki það fram í athugasemdardálki í skráningarforminu. 

Skrá mig