Ræktum betur vörumerkið Ísland

10. des. 2017

Ímynd og orðspor þjóða hefur mikil áhrif á efnahag þeirra. 

Ímynd og orðspor þjóða hefur mikil áhrif á efnahag þeirra. Hvort tveggja getur aukið áhuga ferðafólks á að heimsækja land, ýtt undir eftirspurn eftir vörum og þjónustu, hvatt til áhuga hæfileikafólks á búsetu og störfum og eflt áhuga erlendra fyrirtækja á að fjárfesta. Sterk og jákvæð ímynd skapar verðmæt störf, ekki síst ef mikil fagþekking í framleiðsluiðnaði er líka til staðar. Við þær aðstæður verður víxlverkun í efnahagskerfinu, sem eykur verðmætasköpun og hagsæld enn frekar. 

Í sumum löndum njóta framleiðendur góðs af heimalandinu í verðlagningu. Til dæmis eru svissnesk úr dýrari en önnur og þýskir bílar dýrari en sambærilegir frá öðrum löndum. Gott orðspor landa eykur þannig verðmæti vara sem frá landinu koma. Framleiðandi sem selur vörur sínar með slíku aukaálagi vegna landsins getur greitt hærri laun, fyrirtækið hans getur fjárfest í framþróun og verður áhugasamari vinnustaður fyrir vikið. Aukin verðmæti skapast í samfélaginu sem getur þar með boðið upp á aukin lífsgæði. 

Orðspor þjóða er byggt á stöðu og einkennum sem leiða til upplifunar. Undir hið fyrrnefnda heyra m.a. lífsgæði og samkeppnishæfni. Má þar nefna frelsi, öryggi, aukna menntun, nýsköpun, betra rekstrarumhverfi fyrirtækja og trausta innviði. Undir hið síðarnefnda heyra menning og arfleifð þjóða, náttúra, matur og ferðaþjónusta. Allt þetta skapar umgjörð upplifunar þeirra sem njóta hvort sem það eru landsmenn sjálfir, ferðamenn sem sækja landið heim eða fólk um víða veröld í gegnum „sendiherra“ sem bera þjóðinni gott vitni. Slíkir sendiherrar eru dæmi um menningaráhrif landa. 

Framleiðsla sem er byggð á sérstöðu og gæðum getur svo sannarlega verið slíkur sendiherra og stuðlað að góðu orðspori þjóðar, sérstaklega ef mörkun og markaðssetning er markviss og hagsmunir ólíkra atvinnugreina eru fléttaðir saman á skipulegan hátt. Fjölgum slíkum sendiherrum. 

Þrátt fyrir smæðina er vörumerkið Ísland nokkuð þekkt víða erlendis. Íslenskt markaðsfólk hefur staðið sig vel, náttúra landsins hefur stutt við markaðsstarfið með því að minna reglulega á sig, íslenskt íþróttafólk hefur fangað athygli heimsins og listamenn náð ótrúlegum árangri. Þetta eru sendiherrar Íslands sem bera hróður landsins víða um heim. Erlendar vörumerkjarannsóknir benda t.d. til þess, að Björk sé eitt mikilvægasta vörumerki Íslands, tákngervingur um dulúðina og töfrana sem mótað hafa þjóðina í þúsund ár. Allt ofantalið bendir til þess að á Íslandi búi skapandi fólk í skapandi umhverfi og að Ísland sé uppspretta innblásturs til góðra verka í leik og starfi. 

Þannig er íslenskur framleiðsluiðnaður líka – innblásinn af náttúrulegum og menningarsögulegum andstæðum. Eldi og ís, þúsund ára fátækt og síðari tíma velsæld, plúsum og mínusum sem mætast og leysa úr læðingi ómældan sköpunarkraft. Slíkt getur svo sannarlega verið grundvöllur að aukinni eftirspurn eftir íslenskum vörum og þjónustu, iðnaðarvörum, ferðaþjónustu og sjávarafurðum svo eitthvað sé nefnt með tilheyrandi álagningu á mörkuðum heimsins, til hagsbóta fyrir þjóðina alla.

Sköpunargáfa og innblástur eru meðal mikilvægustu eiginleikanna í efnahagskerfum framtíðarinnar. Þar hefur Ísland forskot á margar þjóðir. Það er tímabært að ólíkir hagsmunaðilar komi saman og nýti þennan frjóa jarðveg til að rækta betur vörumerkið Ísland. Leiti innblásturs hjá Íslandi. Inspired by Iceland.

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.

Morgunblaðið, 9. desember 2017.