Atvinnuleysi
Atvinnuleysi hefur minnkað frá því að það náði hámarki í 4,1% af mannafla í febrúar 2003 og var í árslok 2004 um 2,7%. Árstíðabundnar breytingar í umsvifum í mannvirkjagerð og ferðaþjónustu hafa áhrif til að auka hlutfall atvinnulausra á vetrarmánuðum en lækka það á vorin. Undanfarin ár hefur atvinnuleysi verið meira á höfuðborgarsvæðinu, á meðan stóriðjufjárfestingar minnkuðu það á landsbyggðinni. Uppsveifla í efnahagslífinu er farin að skila sér í meiri atvinnusköpun á höfuðborgarsvæðinu. |