Framleiðni hefur aukist minna á Íslandi undanfarin tíu ár en víða erlendis. Fyrir vikið hafa örar launahækkanir leitt til meiri verðbólgu og það síðan grafið undan kaupmætti. Mikilvægt er að Íslendingar auki möguleika sína á þátttöku á alþjóðamarkaði, sérstaklega hinum sameiginlega markaði Evrópu. Full aðild að sambandinu og upptaka evrunnar myndu bæta starfsgrundvöll fyrirtækja á Íslandi í alþjóðlegri samkeppni og skapa stöðugleika, en hvorttveggja myndi stuðla að aukinni framleiðni. Aðild að ESB og upptaka evrunnar hafa gefist vel, sérstaklega hjá smærri ríkjum sambandsins sem hafa sveigjanlega markaði og byggja markaðsstarf sitt á alþjóðlegri útrás. |