Gengi krónunnar hefur sveiflast mikið undanfarin ár eins og þróun gengisvísitölu krónunnar ber með sér. Í árslok 2001 var gengisvísitalan um 30% lægri en í ársbyrjun 1999. Gengi krónunnar var orðið nokkuð hátt í lok síðustu uppsveiflu. Lækkun krónunnar var því jákvæð fyrir samkeppnisstöðu fyrirtækja í alþjóðlegri samkeppni. Frá árslokum 2001 tók krónan að styrkjast aftur og var í árslok 2004 aðeins 6% lægri en í ársbyrjun 1999. Athyglivert að innbyrðis gengisþróun evru og dollara hafði mjög mikil áhrif á gengi krónunnar gagnvart þeim myntum. Af þeim sökum kom mun meiri sveifla fram í gengi krónu gagnvart dollara en gagnvart evru. Þar sem langstærstur hluti viðskipta þjóðarinnar á sér stað við þjóðir með evru eða gjaldmiðla nátengda henni, skiptir gengi evrunnar meira máli fyrir samkeppnisstöðuna. |