Hagstjórn hins opinbera



Hið opinbera hefur fengið aukið vægi í hagstjórninni hin síðari ár. Aðgerðir þess geta dregið úr sveiflum í efnahagslífinu. Með miklum stóriðjufjárfestingum eru horfur á aukinni spennu í hagkerfinu á komandi árum. Með frjálsu flæði fjármagns og aðgangi bankakerfisins að ódýru erlendu fjármagni til endurlána hérlendis, án tillits til stýrivaxta Seðlabanka Íslands, eykst þörfin fyrir aðhald í opinberum fjármálum. Árið 2004 drógu opinber fjármál meira en tvö prósentustig af landsframleiðslunni. Það er dæmi um rétta hagstjórn. Í fjárlögum fyrir árið 2005 er gert ráð fyrir ívið minna aðhaldi. Lítið má út af bera í fjáraukalögum eða opinberum rekstri ef koma á í veg fyrir að spenna í hagkerfinu aukist of mikið. Ef það gerist þarf að endurskoða núverandi áætlun um hlutlaus fjárlög fyrir árið 2006.