Hagstjórn Seðlabanka Íslands

























Seðlabankar gegna mikilvægu hlutverki í heildarefnahagsstjórn landa sinna með því að tryggja stöðugt verðlag. Það gera þeir með þvi að setja sér markmið. Seðlabanki Íslands stefnir að því að halda verðbólgu sem næst 2,5% á hverju ári. Til þess notar hann stýrivexti til að hafa áhrif á eftirspurn í landinu. Vandi Seðlabankans er að til skamms tíma geta innlendar fjármálastofnanir leitað erlendis eftir fjármagni til endurlána á Íslandi. Við þær aðstæður bítur vaxtatæki Seðlabankans ekki sem skyldi. Aukinn vaxtamunur getur þá haft þau áhrif að auka innstreymi fjármagns í landið til að njóta hærri vaxta en erlendis og það getur tímabundið styrkt gengið. Slík þróun er varasöm þar sem vaxandi viðskiptahalli fylgir gjarnan háu gengi en það getur leitt til gengiskollsteypu. Við þessar aðstæður er brýnt að fjármálastofnanir, fyrirtæki og launþegar hafi hemil á lántökum og þróun kostnaðar í atvinnulífinu. Til viðbótar þarf hið opinbera að koma að hagstjórninni í auknum mæli til að tryggja áframhaldandi stöðugleika.