Hagvöxtur í alþjóðlegum samanburði



Hagvöxtur á Íslandi hefur verið samstiga alþjóðlegri þróun undanfarin ár. Með þátttöku landsins í EES samningnum og aukinni alþjóðavæðingu hafa markaðir landsins opnast sem aldrei fyrr svo og aðgangur okkar að erlendum mörkuðum. Sú þróun hefur leitt til aukinnar samþættingar vöru- og þjónustumarkaða en það dregur úr verðbólguþrýstingi í hagkerfinu. Þrátt fyrir það hefur viðskiptasveiflan á Íslandi verið meiri en víða erlendis, tengd miklum fjárfestingum í stóriðju í lok síðasta áratugar og sveiflum í gengi krónunnar. Nú er hafið nýtt fjárfestingaskeið í stóriðju sem verður mun tilkomumeira en það sem á undan gekk. Í því felst áskorun til hagstjórnarinnar að halda gengi og verðlagi stöðugu á komandi árum.