Ríflegar launahækkanir eru alls ekki ávísun á aukin kaupmátt. Þrátt fyrir miklar launahækkanir árið 2001 minnkaði kaupmáttur vegna þess að verðbólgan jókst meira. Árin 2002 og 2003 minnkaði verðbólgan og kaupmáttaraukningin varð meiri en í löndunum umhverfis okkur. Nýir kjarasamningar hækkuðu launin árið 2004, en kaupmátturinn varð minni vegna vaxandi verðbólgu. Það er hagur vinnandi fólks að taka megi að halda verðbólgunni í skefjum. Lækkun tekjuskatts og afnám eignarskatta á næstu árum mun auka ráðstöfunartekjur mikið. Hagstæðari lánakjör síðan í september 2004 eru einnig ígildi kaupmáttaraukningar. Með hófsömum kjarasamningum aukast líkurnar á stöðugum hagvexti og varanlegum bata í lífskjörum næstu árin. |