Launakostnaður á framleidda einingu
Launakostnaður á framleidda einingu hefur hækkað mun hraðar á Íslandi en erlendis undanfarin tíu ár. Slík þróun, ef hún gengur of langt, stuðlar að óstöðugleika og rýrir samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja í alþjóðlegri samkeppni. Það er mjög mikilvægt að Íslendingar taki sér tak og hætti að knýja fram of miklar launahækkanir sem gera ekki annað en að auka verðbólgu, rýra kaupmáttinn og grafa undan stöðugleika. |