Raungengi og viðskiptajöfnuður
























Raungengið gerir samanburð mögulegan á kostnaði okkar og viðskiptaþjóða okkar í sömu mynt. Sveiflur í raungengi krónunnar breyta samkeppnisstöðunni sem hefur áhrif á jöfnuð erlendra viðskipta. Hátt raungengi hægir á vexti útflutnings, ýtir undir innfluting og eykur viðskiptahalla. Innflæði fjárfestingar- og rekstarvara vegna stóriðjufjárfestinga er stór hluti viðskiptahallans og talað er um góðkynja viðskiptahalla í því samhengi. Aukin framleiðslugeta og útflutningstekjur munu í framtíðinni greiða upp þær skuldir. Verra er ef neysluinnflutningur eykst mikið en það eykur líkur á gengiskollsteypu þegar hillir undir lok framkvæmdanna. Aðhaldssöm hagstjórn er nauðsynleg til að afstýra því.