Iðnaður aflar nú tæplega fjórðungs gjaldeyristekna þjóðarbúsins og hefur sú hlutdeild tvöfaldast frá þátttöku þjóðarinnar í EES samningnum. Gjaldeyristekjur hátæknigreina hafa stóraukist og eru nú um helmingur álútflutnings. Um leið er verðmætasköpun þessara greina þrefalt meiri en stóriðju. Hátæknigreinar samnýta hátt menntastig og nýja framleiðslutækni til útrásar á hinn gríðarstóra alþjóðlega markað. Í framtíðinni þurfa Íslendingar að setja meiri orku og fjármagn í uppbyggingu á sviði hátækni. Fjölþætt atvinnustarfsemi skapar innbyggða sveiflujöfnun í hagkerfið og dregur úr áhrifum ófyrirséðra breytinga í sjávarfangi eða afurðaverði sjávarútvegs og stóriðju. |