Skipting starfa eftir greinum árið 2003
Fjöldi starfa í iðnaði var tæp 24% af öllum störfum í landinu árið 2003. Merkilegt er að hlutfall starfa í hátæknigreinum iðnaðar mælist yfir 3% árið 2003, þrátt fyrir mikla fækkun starfa í upplýsingatækni í síðustu niðursveiflu. Mannvirkjagerð og annar iðnaður útskýra stærstan hluta starfa í iðnaði. Störf í ál- og kísiljárnframleiðslu eru innan við 1% af öllum störfum en þó er fyrirséð að þeim mun fjölga talsvert á komandi árum vegna stóraukinnar framleiðslugetu í greininni. |