Þjóðarútgjöld vaxa nú mjög hratt með ört vaxandi fjárfestingu og einkaneyslu. Aukning einkaneyslu verður nær 7% árin 2003 og 2004. Þar sem vöxtur útflutings er mun minni en vöxtur innflutnings, hefur viðskiptahallinn aukist hröðum skrefum. Sú þróun, ásamt drjúgum afkomubata hins opinbera árið 2004, hefur haft áhrif til að draga úr hagvextinum. Svipaðri þróun er spáð árin 2005 og 2006 en með meiri viðskiptahalla en áður hefur sést í hagsögu Íslendinga og minni afkomubata. Það eykur hættuna á gengiskollsteypu þegar hyllir undir lok framkvæmdanna. |